Rauris er í Salzburger héraði í Austurríki. Bærinn er í 950 m hæð í Hohe Tauern þjóðgarðinum og íbúar bæjarins eru rúmlega þrjú þúsund. Rauris er þekktur ferðamannabær en er laus við massatúrisma eins og víða þekkist í stærri bæjum í Ölpunum.
Göngu- og skíðasvæði
Rauris bíður upp á fjölbreytta útivistarmöguleika jafnt sumar sem vetur. Þar er skíðasvæði, fjölbreyttar göngu-og hjólaleiðir, fjallaskálar, fjölbreytt afþreying fyrir börn og fjölskyldufólk, klifurleiðir, gullleitarsvæði og stórkostleg ósnert náttúra.
Kort af bænum
Vefsíða Rauris
Vefmyndavélar Rauris
Rauris dalurinn
Í nágrenni Rauris
Flug frá Íslandi
Frá Íslandi er auðveldast að fljúga til Munchen en þangað er daglegt flug með Icelandair allt árið. Hægt er að fá ódýra bílaleigubíla á flugvellinum. Styðsta leiðin frá flugvellinum í Munchen til Rauris eru 226 km.
Frá flugvellinum í Munchen er fljótlegast að keyra eftir hraðbrautinni í gegnum Salzburg. Eftir hraðbrautinn er leiðin til Rauris 259 km. Kaupa þarf hraðbrautarmiða í Austurríki.
Hægt er að taka tengiflug í gegnum aðra flugvelli, t.d.London, Kaupmannahöfn eða Berlin, til Salzburg. Icelandair flýgur til Salzburgar á laugardögum frá miðjum desember til mars. Frá Salzburg til Rauris eru 98 km.
Rauris dalurinn
Rauris dalurinn er 30 km langur og oft kallaður “Gulldalur Alpanna“. Fjarri ys og þys umheimsins hefur tekist að varðveita þjóðlegar hefðir í Rauris dalnum. Náttúrfegurð er mikil með óspilltri náttúru. Dalurinn var á öldum áður þekktur fyrir gullnámur og enn í dag geta ferðamenn fundið gull í dalnum.
Rauris dalur er fjölskylduvænn staður og þar er ýmislegt um að vera fyrir ferðafólk en dalurinn á sér langa sögu.
Gullleit
Fjallgöngur
Hjólaferðir
Klettaklifur
River rafting
Fallhlífarstökk (paragliding)
Arnarsýning
Vatnaleiðangur
Í nágrenni Rauris
Rauris er miðsvæðis í Ölpunum og stutt er að keyra á ýmsa þekkta ferðamannastaði í Austurríki og Þýskalandi. Þar má nefna Zell am See, Berchtesgaden (Arnarhreiðrið), Kitzbühel, Salzburg, Saalbach-Hinterglemm, Wagrain, Flachau, Grossglockner Alpafjallveginn, Hallstatt og fleiri fallega fjallabæi í Ölpunum.
Vegalengdir frá Rauris
Taxenbach – 10 km
Zell am See – 26 km
Kaprun – 27 km
St.Johann im Pongau – 31 km
Wagrain – 40 km
Flachau – 50 km
Salzburg – 98 km
Berchtesgaden (Arnarhreiðrið) – 96 km
Munchen – 194 km (217 km á hraðbraut)
Flugvöllurinn í Munchen – 226 km (250 km á hraðbraut)
Áhugaverðir staðir í nágrenni Rauris (vantar myndir…..í vinnslu)
Zell am SeeDýragarðurinn Ferleiten
Göngubrú í Grafenberg
Sleðabraut (rodelbahn) í Kaprun
Paragliding við Zell am See
Risarólur í Gravenberg Wagrain
Liechtensteinklamm í St.Johann
Hallstadt sem er á heimsminjaskrá UNESCO
Lengsta hengibrú í heimi við Reutte
Margir klifurgarðar eru í nágrenni Rauris
Hjólabátar á Zell am See
Sumarskíðun á Kitzsteinhorn
Hohe Tauern þjóðgarðurinn
Rauris er í Hohe Tauern þjóðgarðinum sem er stærsti þjóðgarður Austurríkis, 1.856 km² að stærð. Hann var stofnaður árið 1980 og var fyrsti þjóðgarður Austurríkis. Margar skemmtilegar göngu-og hjólaleiðir eru í þjóðgarðinum ásamt veitinga-og gististöðum.
