Húsið er staðsett í Schiefergasse 1, sem er í miðbæ Rauris.
Í húsinu eru tvær íbúðir og svefnloft. Hægt er að leigja íbúðina uppi, með eða án svefnlofts.
Í íbúðinni er svefnpláss fyrir 4-6 manns. Þar er svefnherbergi með hjónarúmi og koju, stofa með svefnsófa, eldhús og baðherbergi. Öll eldhúsáhöld, kaffivél, hitakanna, örbylgjuofn og uppþvottavél er í íbúðinni. Á svefnlofti er svefnaðstaða fyrir 8-10 manns í einu rými. Þar er salerni, sjónvarp, leikjatölva og kamína.
Aðgangur er að skíðageymslu í kjallara og bílastæði fyrir allt að fimm bíla er við húsið.
Í garðinum er stórt gufubað sem gestir hafa afnot af.
Göngufæri er í miðbæinn, skíðalyftur, matvörubúðir (Spar og Billa) og veitingastaði.
